Allar spurningar og svör

Persónuupplýsingar - Hvað er það?

Persónuupplýsingar eru allar upplýsingar sem hægt er að tengja við þig sem einstakling, t.d. nafn, kennitala, staðsetningargögn, ljósmynd o.s.frv.

Persónuupplýsingar eru allar upplýsingar sem er hægt að tengja við þig sem einstakling, t.d.   nafn, kennitala, staðsetningargögn, IP-tölur/netauðkenni eða einn eða fleiri þættir sem einkenna þig með einhverjum hætti. Persónuupplýsingar eru almennt ekki upplýsingar um fyrirtæki eða dýr.

Það er margt sem getur fallið undir hugtakið persónuupplýsingar og því erfitt að gefa nákvæma upptalningu. Mikilvægt er að átta sig á því að það er ekki skilyrði að unnið sé með upplýsingar sem er hægt að tengja beint við þig eins og nafn og kennitala heldur getur þetta verið samansafn  upplýsinga sem saman leiða til þess að upplýsingarnar eiga eingöngu við þig.

Sem dæmi má nefna að viðhorfskönnun, þar sem engum upplýsingum um þátttakendur er safnað nema upplýsingum um aldur og kyn, telst almennt ekki fela í sér söfnun persónuupplýsinga. Ef hópurinn sem tekur þátt í könnuninni er aftur á móti þannig samansettur að mjög fáir einstaklingar eru á tilteknum aldri eða af ákveðnu kyni getur verið um persónuupplýsingar að ræða, en við slíkar aðstæður kann að vera mögulegt að vita hver svaraði, út frá upplýsingum um aldur og kyn viðkomandi.

Hvaða persónuupplýsingar teljast viðkvæmar?

Tilteknar persónuupplýsingar teljast viðkvæmar samkvæmt  persónuverndarlögum og eru gerðar strangari kröfur til þess hvenær má vinna með slíkar upplýsingar.

Þær upplýsingar eru:

  • Upplýsingar um kynþátt, þjóðernislegan uppruna, stjórnmálaskoðanir, trúarbrögð, lífsskoðun og aðild að stéttarfélagi.
  • Heilsufarsupplýsingar.
  • Upplýsingar um kynlíf manna og kynhneigð.
  • Erfðafræðilegar upplýsingar
  • Lífkennaupplýsingar, þ.e. persónuupplýsingar sem fást með sérstakri tæknivinnslu og tengjast líkamlegum, lífeðlisfræðilegum eða atferlisfræðilegum eiginleikum einstaklings og gera það kleift að greina eða staðfesta deili á einstaklingi með ótvíræðum hætti, svo sem andlitsmyndir eða gögn um fingraför.

Gera verður greinarmun á viðkvæmum persónuupplýsingum annars vegar, og hins vegar þeim upplýsingum sem ekki teljast viðkvæmar samkvæmt lögum en eru engu að síður viðkvæms eðlis, t.d. upplýsingum um félagsleg vandamál, hjónaskilnaði o.þ.h. Þessar upplýsingar falla í flokk almennra persónuupplýsinga en almennt eru þó gerðar strangari kröfur til vinnslu þeirra en þegar eingöngu er unnið með nafn og heimilisfang.

Eru upplýsingar um refsiverða háttsemi viðkvæmar?

Upplýsingar um refsiverða háttsemi einstaklinga teljast ekki til viðkvæmra persónuupplýsinga samkvæmt persónuverndarlögum, en þrátt fyrir það eru sérstök skilyrði sett fyrir vinnslu þeirra í lögunum. Nánar tiltekið segir í lögunum að stjórnvöld megi ekki vinna með upplýsingar um refsiverða háttsemi nema það sé nauðsynlegt í þágu lögbundinna verkefna þeirra. Þá mega þau ekki miðla upplýsingunum nema á grundvelli þeirra heimilda sem tilgreindar eru í persónuverndarlögunum.

Þá segir að fyrirtæki megi ekki vinna með upplýsingar um refsiverða háttsemi nema einstaklingurinn sem upplýsingarnar varða, hafi veitt til þess afdráttarlaust samþykki sitt eða vinnslan sé nauðsynleg í þágu lögmætra hagsmuna sem auðsjáanlega vega þyngra en grundvallarréttindi og frelsi hins skráða.

Þá má ekki miðla upplýsingunum nema að uppfylltum tilteknum skilyrðum sem sett eru í lögunum.  



Var efnið hjálplegt? Nei